El snillingos

heja Norge!

Vafraðu um


Herra og frú Laugarvatn:)

Nafn:

Birkir og Stebba

MSN netfang:

birkirm@hotmail.com og stebbastelpa@hotmail.com

Afmælisdagur:

11.nóv og 22.des

Staðsetning:

Bergen

Um:

Þú þekkir okkur;)

Tenglar

Blogg

26.1.2009

hér er kýr, um kú, frá kú, til kýr

Jæja Birkir enn á Spáni og thetta er ordinn ansi langur tími, samt sex dagar í kappann ennthá. Fjølbreytnin í mínu lífi thessa dagana er thví bara hvort ég lyfti "efri" eda "nedri" tók reyndar adeins of mikid á thví í hnébeygjunum og hef thví thurft ad eyda "Nedri" døgunum á hjóli undanfarid:) En ádur en einhver lætur lífid af thví ad innbyrda og mikid magn gagnlausra upplýsinga skal ég hætta...
Helginni eyddum vid mædginin í video gláp, poppát, bæjarferd og sundsprikl. Olla og Ingthór, sem eru tveir dýrdgripir hér í Bergen, budu okkur med sér í bæinn á laugardaginn og svo var bøkud pizza fyrir allt lidid um kveldid. Held satt best ad segja ad thau hafi reddad helginniemoticon
myndir úr bæjarferdinni:

bara fallegastur...


mmmm gód lykt af kaffinu:)


mædgurnar med heitt kakó


ógisslega fyndid:)


alheimsforstjórakvendid sem stjórnar øllu!!

Ingthór á heidurinn ad thessum myndum:)


Svo má ég nú til med ad minnast adeins á studningsmann #1 af thví ad hún er snillingur og veit hvad hún syngur...emoticon  Gudbjørg Stefanía Hafthórsdóttir, á heidurinn ad thessari dýrdlegu mannveru.


Ef thær mædgur eiga ekki eftir ad mæta á Gjøas vei og rølta einn fagran eftirmiddag nidur á Brann vøll thá skal ég hundur heitaemoticon

Heim um páskana, já
lídur okkur vel í Bergen, já
er ég dugleg ad fara í ræktina, já
er B ánægdur hjá klúbbnum, já
eru krakkarnir óthekktarormar, já
er Hjørtur bólginn um augad eftir klór frá systur sinni, já
er Hjørtur bestur í fótbaltanum, já
er Thóra snillingur, já
er ég montin med fólkid mitt uuuuu JÁ
má ég vera thad, jáemoticon

mæli med heilhveitipizzum, svo gaman ad fara í prumpukeppni eftir ad hafa bordad svoleidis:)
SS

Skrifað 26.1.2009 kl. 9:44 af

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.1.2009

Ótitlað

mér finnst thetta tøff myndband! kannski vegna thess ad minn madur er einn af adalgaukunum:) ad mínu mati flottastur, flinkastur og bestur, bara kalt matemoticon
kíkid á thetta!

their sem thekkja manninn geta bara ekki annad en elskad hann og knúsad reglulegaemoticon
kv SS (semergrasekkjamedfráhvarfseinkenni)

Skrifað 20.1.2009 kl. 20:10 af

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.1.2009

Ótitlað

*Rólegheitaárið 2009 byrjar með stæl...  Þetta er náttúrulega jákvætt fyrir okkar mann, en jii dúdda mía, hin heiftarlegu ofnæmisköst sem hafa hrjáð mig undanfarið stafa af öllu sem tengist því á einn eða annan hátt að pakka niður og eða ganga frá...emoticon

*talandi um að pakka... ég er farin að huga að Íslandsför um páskana, ekki seinna vænna, þar sem 12 dagar eru síðan við lentum á Flesland eftir 5 vikna dvöl á klakanum. Frumbi verður 8 ára daginn fyrir páskadag og sé ég því ekki annað í stöðunni en að flýja Noreg þann dagemoticon

*Grasekkjulífið hefur bankað á dyrnar því á morgun leggur húsbóndinn land undir fót, liðið er á leið til Spánar í tvær vikur. Því gæti ég þá trúað að krossgáturnar fengju aðeins að finna fyrir því næstu kvöld.

*Nýji þjálfarinn hjá Brann er heldur betur að láta til sín taka og orðið á götunni er það, að undirbúningurinn hafi sjaldan verið harkalegri... Það er einnig augljóst á göngulagi húsbóndans að eitthvað gengur á á æfingum. Tímabilið sjálft hefst svo 15. mars og get ég ekki leynt spenningi mínum... þetta verður skemmtilegt sumar, eða réttara sagt vor, sumar og haust, þar sem tímabilið stendur yfir e-ð fram í nóvember að mig minnir.

Farin að rifja upp Kardemommubæinn... erum að fara á leikritið hér.

munið að hér er alltaf nægt gistipláss;)...og ég er orðinn geðveikur kokkuremoticon
SS



Skrifað 16.1.2009 kl. 7:41 af

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.1.2009

2008

Við byrjuðum árið uppi á Laugarvatni, vitandi ekki betur en að árið yrði bara svona eins og öll hin. Byrjaði bara fáránlega vel þar sem ekki var hægt að kvarta yfir snjóleysi og Vatnið skartaði sínum fegursta vetrarbúningi.



Birkir fór í sínar æfinga- og landsliðsferðir, og á meðan hann var í burtu var rúmið mitt samt sem áður þétt skipað...

...ekki nóg með það að Þ og H hafi komið sér vel fyrir, þá voru þarna gestir eins og Barbie og Spider-man:)

þegar líða fór að vori fór H að eyða enn fleiri klukkustundum úti á sparkvelli, æfði allar kúnstir, bæði mögulegar og ómögulegar sem að lokum leiddu til viðbeinsbrots! Kjappinn skellti sér í hjólara og brotnaði því í annað sinn.

hann datt svo á öxlinaog reif allt upp aftur þegar beinið var um það bil gróið um 5 vikum seinna og uppskar enn verra brot. Tennurnar fóru að tapa tölunni og hann var ansi skrautlegur útlits þessa mánuðiemoticon

Ingvi bróðir eignaðist svo sitt fyrsta barn með Hóu sinni svo það var farin ferð til Akureyrar til skoða litla manninn, sem fékk svo nafnið Sigurður Jökullemoticon


Frumbi varð 7 ára og afmælið hans haldið upp í fjalli, þar höfðum við útbúið smá leiksvæði úr trjánum í útiskólaáfanga í okkar námi (ég, Birkir og fimm bekkjarfélagar okkar)

best heppnaðasta barnaafmæli sem sögur fara af!

Við tókum stóra ákvörðum (að okkar mati... ÞÁ) og ákváðum að flytja til Rvk, keyra í skólann á þriðja og síðasta árinu þar sem viðveran átti ekki að vera svo mikil þar en hins vegar æfingar hjá B daglega. Gott plan fyrir sumarið, B og H uppi á Hlíðarenda og ég og Þóra leikskólanum á Sólhlíð. 
Búin að koma okkur fyrir í Naustabryggjunni, rétt búin að skella á eftir okkur, flytja allt draslaði frá Laugarvatni og skúra, skrúbba og bóna þegar NOREGUR kallaði! B var keyptur til Brann og hann þurfti að fara út sem fyrst... sem þýddi það að nú þurfti að pakka, henda (aðallega henda) og þrífa aftur og allt í merkta og númeraða kassa. ...Birkir fær að vera með næst þegar við skellum okkur í millilandaflutningaemoticon  Hélt eitt stykki barnaafmæli nokkrum dögum fyrir brottför þar sem einkadóttirin varð 5 áraemoticon

Birkir skrifaði undir samning og Noregs ævintýrið byrjaði frábærlega!


B fékk nokkur tækifæri með liðinu, var valinn maður leiksins fljótlega og skoraði skemmtilegt mark undir lokin, sem var svo í topp 5 yfir mark ársins hér í Nor. Kjallinn spilaði einnig alla þá leiki sem landsliðið spilaði á árinu 2008 undir stjórn snillingsins Ólafs Jóhannessonar. Það skemmdi svo ekki fyrir þegar frændurnir, Birkir og Gulli, voru farnir að spila þar saman líkaemoticon



Börnin hressari, duglegri, móttækilegri, samvinnuþýðari, blíðari og skemmtilegri en nokkur þorði að vona og það á sko ekki að stoppa neinn að flytja til úgglanda, að eiga börn! þetta er baaaara gamanemoticon


Ég sjálf var farin að rífa í lóð daglega, hlaupa eins og enginn væri morgundagurinn í stöð hérna rétt hjá og líkaði vel. Svo fór mér nú e-ð að daprast flugið. Máttleysi, leti og aumingjaskapur var farinn að einkenna lífstíl minn. þegar "kvefið" var farið að færa sig upp á skaptið rassgataði ég mér loks til læknis og greindist með sérviskuna mína nokkrum tímum síðar. Ég er nú alltaf að verða flinkari með rokkandi blóðsykurinn en djöfull sem hann virðist ekki þreytast á að koma mér á óvart helvískuremoticon
Í kjölfar nýjustu frétta ákváðum við að fara heim til Íslands um leið og Brann færi í jólafrí.


Vorum því komin heim í lok nóvember og nutum frísins með næringarfræðingum og læknum til að byrja með en höfðum það heldur betur gott. Tókum jólin fyrir vestan og áramótin í Rvk.



Birkir toppaði atvikamikið ár með því að skella sér á skeljarnar á aðfangadag og hver veit nema það verði svo sem eins og einn eða tveir dagar lausir næsta sumar...emoticon


Vona að enginn sé dauður, ef einhver hefur þá nennt að lesa þetta allt saman... bölvað raus í manni alltaf hreint.
SS

Skrifað 9.1.2009 kl. 8:28 af

Bein slóð á færslu

14 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 41
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 95548
Samtals gestir: 36649
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 01:34:21