|
El snillingos heja Norge! |
|
Vafraðu umEldra efni Herra og frú Laugarvatn:) Nafn: Birkir og StebbaMSN netfang: birkirm@hotmail.com og stebbastelpa@hotmail.comAfmælisdagur: 11.nóv og 22.desStaðsetning: BergenUm: Þú þekkir okkur;)Tenglar
|
Blogg27.11.2008ÓtitlaðEkki á morgun heldur hinn verðum við á Íslandi!!! þess vegna er þvílík spenna í kofanum og "niðurpökkunarlistinn" tilbúinn, nú er bara að fara að setja í tösku og haka við listann Einn ónefndur óþroskaður maður frussaði kóki yfir sambýling sinn í gær... en það fór líka í ljósu gardínurnar sem sambýlingurinn hafði þvegið og straujað fyrir ekki svo löngu síðan uppáhalds myndin mín í dag er þessi: og líka þessi: var sem sagt að henda inn nokkrum myndum í viðbót:) Þar sem við erum að fara heim í frí fram til 4. janúar þá skuluð þið ekki gera ráð fyrir neinu kjaftæði á þessari síðu fyrr en á árinu 2009. Ekki samt endilega gera ráð fyrir því að það komi ekkert kjaftæði... Til að gera langa sögu stutta þá bið ég ykkur bara vel að lifa! Einnig vill þakka Birki mínum fyrir blogg "samstarfið" á árinu 2008... Jósefína 21.11.20084x4 neeeee-eiiiiVill byrja á því að biðja lesendur velvirðingar á drep leiðinlegri færslu sem birtist hér í gær. Vonum að hún hafi ekki svert orðstír síðunnar. Veit ekki hver komst inn í kerfið og reyndi með þessum hætti að aflífa mig og aðra lesendur En í tilefni dagsins þá býð ég upp á blogg í punktaformi svokölluðu. (það er í uppáhaldi hjá mér) *freknótti fylgisveinn minn skilaði sér heim seint í gærkveldi eftir fárra daga dvöl á Möltu. Þar spilaði hann æfingaleik með landsliðinu sem þeir unnu með einu marki gegn engu. *hann fór með bíllykilinn með sér!!! en það var allt í lagi ég átti þurfti bara að fara með ÞK í leikskólann í aðra áttina og fara sjálf í skóla í bænum sem er í hina áttina. Dansskóli um kvöldið og það var komið að mér að keyra í þetta skiptið... En Ármann og Guðrún settu bara stebbutaxa-skilti á toppinn á mözdunni sinni og skutluðu okkur fjölskyldunni fram og til baka þar til lykillinn svo kom með pósti:) *Það snjóar bara í Bergen og er allt hvítt í dag. Snjórinn á götunum er á við e-ð sem ég myndi í daglegu tali kalla bölvaðan tittlingaskít og ég myndi aldrei hugsa mig um hvort það væri í lagi að skutlas á bíl við slíkar aðstæður... *EEEEEEN... Bílinn hafði ég ekki upp brekkuna á heimleiðinni af leikskólanum þar sem druslan er ekki einu sinni fjórhjóladrifin (og ég sem er í 4x4 klúbbnum...) og svo setur maður ekki vetrardekkin undir fyrr en það er kominn SNJÓR!!! *...var ég búin að minnast á að bíllinn var svo eftir allt saman bara alls ekkert fjórhjóladrifinn??? *Fáfróða kona. Að ég skuli næstum því vera úr sveit! *Eru einhverjir sem ætla að senda okkur jólakort sem ég veit ekki um? því ég þarf nefninlega að gera ráð fyrir korti til baka skiljiði... er að fara að panta myndirnar í þau... *kreppan hefur haft þau áhr... DJÓK!!! *við verðum á Íslandi eftir einungis eina viku! *það þýðir þá að Helena á afmæli eftir 10 daga (2.des.) og ég sjálf þá eftir 32 (22.des) *Þeir sem vilja koma í sykurfríar kökur og diet appelsín þegar ég á afmæli eru hjartanlega velkominr. Gjafir vinsamlegast afþakkaðar en þeir sem vilja gleðja mig og mitt litla hjarta gætu komið í "einn sjómaður kom til Hong kong kong..." Þóra Kolbrún getur gert allt of margar armbeygjur miðað við aldur! og nú skyldu þeir lesa sem þekkja Birki... kauði hefur lagt kókinu fyrir kók light/zero/diet það sýnir svo sannarlega að hann stendur, takmarkalaust, mér við hlið fram í rauðan... Er að henda inn myndum, sýnishorn: misjafnar áherslur við baksturinn hjá systkinunum prúðu:)... umhyggja frá Noregi, Bergen, innflytjendahverfi, Gjöas vei:) 20.11.2008neikvædnisblogg!mikid lifandis óskøp hef ég lítid dálæti á Dabba litla lokkaprúda! Hann tharf ad krukka med sínum skítugu fingrum í øllum andskotanum, til thess eins ad keyra adra um koll og nidurlægja, svo oft langt utan vid hans valdasvid. Thetta er virkilega farid ad líta út fyrir mér sem hann thrái athygli og virdingu, en vinni einungis ad thví á kostnad annara med nidurlægingum. Útlitslega hefur hann ekki upp á neitt ad bjóda, enda myndi thad ekki skipta máli ef innrætid væri thví skárra... en svo er thví midur ekki. Thad sem ég á í miklum vandrædum med ad skilja alla thessa litlu thræla í thjódfélaginu sem sjá ekki til sólar vegna hans! ...Gud blessi børnin:) takk fyrir gódan daginn og veridi bless... SS 13.11.2008stay plationNú er ég byrjuð á norskunámskeiði og það gengur bara glimrandi... er eiginlega í léttari kantinum fyrir íslending. En þar sit ég með allra þjóða kvikindum, þar er Tyrki, Tælendingur, Íri, ein væn Úkraínsk og Frakki... og svo ég:) En ef maður þyrfti nú eingöngu að velta því fyrir sér hvaðan fólkið er... ég komst nú bara að því í gær að Tælenska stelpan er bara alls ekkert stelpa... hún er strákur!!! En allavega, fegin að ég komst að því eftir BARA tvö skipti og áður en ég lét eitthvað kjánalegt vaða í andlitið á strákgreyinu. Írinn er með lesblindu á háu stigi þannig að ég var eiginlega orðinn kennarinn hans og sú franska er svo upptekin af því hversu æðisleg hún og hennar land og þjóð sé að það nær bara ekki nokkur hlutur til hennar. Tyrkja Guddan kom á óvart og er besta skinn, hleypir reyndar annað slagið af stað kjánahrolli þegar hún keppist við að svara þegar kennarinn er að spyrja hina á námskeiðinu. Þá kallar hún svarið upp yfir sig og þarf svo að biðjast afsökunar því það bara var alls ekkert verið að spyrja hana. Næst ætla ég að segja "heitir þú Stefanía?" þegar hún, rjóð og úfin, öskrar svarið sem ég átti að svara Af sérviskunni er það að frétta að ég er orðin ansi hreint aum í fingurgómunum af öllum þessum mælingum, en þeim fækkar nú þegar ég verð orðin flinkari í þessu öllu saman. Farin að þekkja á sjálfa mig og viðbrögð við öllum mat o.s.frv. Þóra Kolbrún vill ólm fá að hjálpa til við að sprauta og fær það að sjálfsögðu. Í þau skipti þarf ég að halda vel við pennann/sprautuna þegar hún þrýstir á því krafturinn er slíkur að ef ég ekki héldi við gengi græjan sennilega í gegnum mig. Enda státar hún sig af byssunum sínum sem hún þenur oft á dag í þeim tilgangi að leyfa öðrum að þreifa þær. Svo syngur hún hástöfum með laginu "I kissed a girl and I liked it..." er einhver annar sem sér hvert stefnir... Hjörtur var fyrstur á heimilinu til að vinna fyrstu norsku medalíuna, en hann tók þátt í Brann cup með liðinu sínu og fékk í staðinn þessa skínandi fallegu medalíu í safnið. Hann fékk nú reyndar ekki að taka fullan þátt þar sem tölvupóstur um breyttan tíma mótsins hafði ekki borist okkur og mættum við því þegar 10-15 mínútur voru eftir af síðasta leiknum. Honum var hent inná og skoraði hann eina mark liðsins á mótinu. Markið og medalían björguðu því þá sennilega að ekki þurfti að fara með vonsvikinn fótboltasnáða heim aftur Birkir átti afmæli á þriðjudaginn og í tilefni af því skellti húsfreyjan í nokkrar dísætar og bauð góðu fólki til átu. Veitingarnar virtust af bestu sort því ekki sat sú sykursjúka eftir með afganga til að horfa á "þú ert góður í hjartanu" "mér finnst gaman að gefa þér kaffi" "þú ert svo flottur og mikill töffari" og þessar setningar frá Hirti Smára: "mér finnst gaman að vera með þér í fjölskyldu" "þú ert góður í fótbolta" "mér finnst gama að leika við þig" Hef sjaldan skemmt mér eins vel og þegar við vorum að búa þessa miða til Ég setti reyndar á gjöfina frá mér líka en þær eru ekki birtingarhæfar Malta-Ísland 19.nóvember, Birkir með... Grétar Rafn meiddur þannig að hver veit nema hægri bakvörðurinn verði hægri bakvörður en ekki kantur:) Gulli einnig með... Gooooott:) 16 dagar í Íslandsför!!! ha det... SS 3.11.2008greindist með sérvisku..Takk kærlega fyrir öll kommentin! Mér líður eins og Kormáki afa, hann var svo ríkur... ekkert í töskunni, en samt var hann svo ríkur Ég sprauta mig ansi oft á dag núorðið, lét það alveg eiga sig áður... ét eins og ég sé aðþrengd eiginkona á "danska kúrnum" og ver tíma mínum í lestur næringagilda og innihaldslýsinga. Ansi hreint magnað að sjá til okkar hjónaleysanna í matvörubúðinni þessa dagana, það mætti segja að matarkarfan hafi breyst örlítið... en til hins betra með tilliti til nýuppgötvaðrar sérvisku húsfrúarinnar Við ætlum okkur svo, í ljósi sérviskunnar, að fara heim til Íslands 29. nóvember og dvelja fram á næsta ár Svona var maður nú orðinn sauðslegur, með blóðsykurinn í 32 og verið að uppljóstra svik brissins í garð hýsils... Tel mig nú vera e-ð að braggast... komin með roða í varirnar og annan slíkan óþarfa:) En þetta gengur allt saman vel, tilraunir á mat, lyfjagjöf og átu skila sér í æ meira magni í stöðugum blóðsykri og aukinni vellíðan. Birkir ætti að vera kominn með merki í barminn sem á stæði "SÉRFRÆÐINGUR" Tímabilið búið hjá Birki, æfingar út nóv og svo frí. Hjörtur að brillera í skólanum, í foreldraviðtali sagði frú kennari að hann stæði sig mjög vel í öllu og læsi meira að segja norskuna betur en mörg börnin. Ætti mikið af vinum og tæki fullan þátt í kennslustund Þóra er
farin að syngja norsku leikskólalögin og söng m.a. á afmæli leikskólans í
liðinni viku ásamt hinum 5 ára lömbunum. Hún hlakkar alla daga til að fara í
leikskólann og viljum við trúa því að það sé vegna áhuga á starfinu þar en ekki
áhugaleysis á heimilislífi okkar fjölskyldunnar S Flettingar í dag: 14 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 62 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 95700 Samtals gestir: 36679 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 13:41:41 |