|
El snillingos heja Norge! |
|
Vafraðu umEldra efni Herra og frú Laugarvatn:) Nafn: Birkir og StebbaMSN netfang: birkirm@hotmail.com og stebbastelpa@hotmail.comAfmælisdagur: 11.nóv og 22.desStaðsetning: BergenUm: Þú þekkir okkur;)Tenglar
|
Blogg29.9.2008færsla tileinkuð uppáhaldinu mínu: prumpi:)*Ef þú ert ekki aðdáandi prumpuhúmors máttu hætta að lesa bloggið mitt, eða reyna að þróa húmorinn. *Fórum í eitt leiðinlegasta samkvæmi sem hægt var að bjóða upp á á föstudaginn s.l. Snobb frá helvíti, Stebba í kjól=helvíti (þurfti að prumpa allan tímann), of lítill matur á diskunum=helvíti, gamlir snobbaðir kallar að halda ræðu=helvíti. *Börnin bara í heimahúsi hjá íslenskum hjónum á meðan! það er Snilld, rosa almennilegt fólk sem við höfum kynnst, hjónin eiga 15 ára gamla dóttur sem ætlar að vera svona barnapía fyrir okkur. *Brann vann Lyn í gær 2-0 *Birkir skoraði seinna markið og er það eitt af fimm mörkum sem koma til greina sem mark umferðarinnar Hægt að skoða viðtal við pungsa hér *Ég er að koma í heimsókn til Íslands eftir 9 daga *ætla loksins að mæta á landsleik. 15. okt mætir Ísland Makedóníu og ég ætla að vera þar!!!, get ekki beðið *Birkir er með prumpuveikina... en hún kemur í kjölfar of mikillar hárgels notkunar *ÞK er komin með leikskólapláss og er á sama leikskóla og íslensk vinkona hennar 21.9.2008já helduru það? bara sí svona...Birkir er að kúra hjá Ármanni á hótelherbergi í Osló. Þeir fóru þangað í dag þar sem þeir eiga leik við Lilleström á morgun (mánudag) Vonum að pungurinn fái nú að spreyta sig, held að bakvörðurinn sá hægri sem hefur verið í liðinu undanfarið sé til aðhlynningar í vælubílnum núna. Ég er byrjuð (LOKSINS) að rífa í lóðin/hlaða byssurnar á líkamsræktarstöð hérna í grenndinni. Þetta er náttúrulega ekki þreksalurinn á Laugarvatni en ágætt samt. Til stendur að skella sér til Íslands 8.-16. október. Landsleikur heima þann 15. og svona, Ísland Makedónía... ekki leiðinlegt að skella sér á einn svoleiðis. Liðið mun spila fyrst einn upphitunarleik við Hollendinga 11. okt og vonum bara að sá hljóðláti verði í hóp hlátrasköll heyrðust af loftinu í kvöld... í ljós kom að þar var froðupartý í fullum gangi... hefði þurft að vera hljóð með þessum myndum Bauð Ármanni Smára, spúsu hans Guðrúnu Lind skagamær ásamt guðdómlegum dætrum þeirra í mat á fös og fyrirkomulagið var þannig að ég flatti út bara andskotans nógu mikið af pizzabotnum (aðsjálfsögðu hjemmelaved) og hafði svo í boði reiðinnar ósköp af áleggi. Fólk fékk sér svo bara eitt stykki botn og hlóð dýrðinni á og skellti í pizzaofninn góða. Þetta heppnaðist bara nokkuð vel og ég fílaði þennan sjálfraðarastemmara Ég asnaðist til að útbúa okkur Facebook-síðu, hún er á mínu nafni þannig að ef þið litlu menn, vinir Birkis vilja fylgjast með kauða þá verða þeir bara að adda mér hef ekki hugmyndaflug í meiri skít í bili. En svona í anda þess málfars sem er mér svo kært þá datt mér í hug að minna ykkur á þessa frábæru skemmtun hér SS 18.9.20082-0Vorum að koma heim af vellinum þar sem Brann lagði Deportivo de la Coruna 2-0. Ármann Smári var í framlínunni, Gylfi Einars á miðjunni, Kristján Örn og Óli Örn í vörninni í stórgóðu liði Brann og áttu íslendingarnir allir góðan leik. Óli skoraði fyrra markið úr öruggu víti. Hérna sést Gylfi fagna seinna markinu á mjög sérstakan hátt (hægri bakvörðurinn sem er að spila allt of vel um þessar mundir sést svo þarna fyrir aftan) Ef þeir komast svo í riðlakeppnina eru þeir að fara að spila við svakaleg númer í fótboltanum... og ef liðið heldur áfram að spila eins og það spilaði í kvöld þá getur allt gerst, Þessu verður gaman að fylgjast með Ég held því bara áfram að vera stuðningur sambýlingsins og uni vel kv úr boltanum í Noregi St Si 18.9.2008Ótitlaðvar að skíta inn 50 myndum og einni mynd ss Flettingar í dag: 47 Gestir í dag: 9 Flettingar í gær: 41 Gestir í gær: 8 Samtals flettingar: 95593 Samtals gestir: 36656 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 22:46:29 |