|
El snillingos heja Norge! |
|
Vafraðu umEldra efni Herra og frú Laugarvatn:) Nafn: Birkir og StebbaMSN netfang: birkirm@hotmail.com og stebbastelpa@hotmail.comAfmælisdagur: 11.nóv og 22.desStaðsetning: BergenUm: Þú þekkir okkur;)Tenglar
|
Blogg30.8.2008dauði og drepsóttirMig vantar: íslenskt krossgátublað íslenskt skyr BÚSLÓÐINA MÍNA!!! (hún er líka íslensk) Birkir er í burtu, Bodö-Glimt - Brann á morgun. Ef ég hef skilið eitthvað rétt úr norsku pressunni þá er það eina liðið sem hefur ekki tapað leik á heimavelli það sem af er þessi tímabili... ætli þeir spili ekki á gervigrasi eins og hinir rassgatsbúarnir... nei veit reyndar ekkert um það ![]() Svo fer pungurinn til Osló til að spila með landsliðinu. Noregur-Ísland 6.sept og svo til Íslands... Ísland-Skotland 10.sept. Langar heljarinnar ósköp að skella mér til Osló á leik ![]() mamma hafur útskýrt hlandlyktina í garðinum hjá mér. það gerði hún þegar hún þefaði af illgresinu hér sem hún kallar blóm og ljómaði, þegar hún sagði "já það er þetta sem ilmar svona vel..." sagt er að: -dömurnar í Köben séu mun ljúfari en þær íslensku, það þyrfti engan eðlisfræðing til að finna það út... menn séu jafnvel til í að framlengja dvöl sína þar sökum þessa ![]() -Addi og Höddi ætli í mál við Erling og Kára vegna inntöku nýnema árið 2008 í íþróttafræði á Laugarvatni, þar sem hlutföll kvk og kk séu þeim með öllu óhagstæð ![]() -Gunnar Borgþórsson eyði frítíma sínum í að skipuleggja brúðkaup... þó ekki sitt eigið ![]() -Birkir sitji núna á hótelherbergi með Íslenskum liðsfélaga sínum og semji málshætti fyrir næsta málsháttaleik. En það sem hann veit ekki, er að það er ekki nóg að hlaupa hratt... -að Þegar Helena var að reyna að fá samþykki fyrir útskriftarferð til Bergen hafi hún fengið jafn dræmar undirtektir og Georg Bjarnfreðarson þegar hann vildi fara til Svíþjóðar fyrir starfsmannasjóðinn... ÞÓ SVO að hún hafi reynt að heilla með Gamle Bergen, bryggen og Flöibanen ![]() -Katrín hafi styrkt sjóðinn "stækkum leikskólann" rausnarlega við hátíðlega athöfn er sjóðurinn var stofnaður. og já Katrín! frændi hans Vignis býr hérna í svona 30 sek. labbfæri frá okkur... ÞEGAR þú kemur í heimsókn þá getum við haldið svona götugrill og boðið öllum tyrkjunum sem búa hérna í götunni líka![]() -Ilmur sé eina manneskjan í HEIMINUM sem hafi tekist að velta lazy-boy aftur fyrir sig, bara við það að "setjast" í hann... en mikið djöfull hló ég þegar það gerðist, ekki frá því að leki sem kenndur er við þvag hafi átt sér stað þá ![]() Spurning dagsins: Hvað tekur Sigga Láka/Sigga Baxter/Láki/Baxterinn (gellan með svertingjagenin) í bekkpressu? a) 105kg b) 110kg c) 115kg Sakna ykkar súkkulöð ![]() ......... Jósefína. 27.8.2008dettur mér í hug staka...Mér datt í hug að deila með ykkur mjög svo áhugaverðum og skemmtilegum leik. Þeir sem kunna leikinn geta nýtt sér það hvar sem er og hvenær sem er... á flugi, í bíl, í leiðinlegum heimsóknum og svo mætti lengi telja. Hann er þannig að annar leikmaður af tveimur segir, þegar hann finnur til löngunar í leikinn, einn málshátt. Mótspilari þarf að vera fljótur að hugsa því þar með er leikurinn hafinn!!! þá keppast andstæðingarnir um hver man fleiri málshætti. Ekki er nauðsynlegt að málshættirnir séu í samhengi heldur einungis að muna þá flesta og fleygja þeim fram hverjum á fætur öðrum, í þeim tilgangi að muna fleiri en andstæðingurinn og þannig sigra leikinn ![]() Þennan leik leikum við hjónaleysin oft og þykir okkur leikurinn hin mesta skemmtun, þess má geta að yfirburðir húsfreyjunnar eru þó afar miklir en sparkarinn knái virðist þó alltaf til í að bæta sig. Því eftir leikinn þá á sér undantekningalaust stað samtal sem hljómar einhvernveginn svona: B: vá spúsa mín mikið ertu minnug á málshætti! S: já... veit B: viltu kenna mér nokkra? ...bara svona þrjá? S: nei það get ég ekki því þú ert andstæðingur minn í málsháttaleiknum. B: ok ljúfum sigri fagnað:) góðar stundir... 24.8.2008*Í Bergens tidende í dag birtist svolítið krúttlegt og skemmtilegt viðtal við Birki ![]() *Við erum að sjálfsögðu að fara á leikinn í kvöld Brann-Rosenborg ![]() *Við erum laus við bílaleigubílinn og komin á okkar eigin: *Við fengum gefins rosa stórt og flott grill frá einum íslendingnum í Brann sem var búinn að endurnýja... grillið er eins og við systkinin gáfum mömmu þegar hún varð fimmtug ![]() Svo eru komnar nokkrar myndir í viðbót í albúmið. Smá sýnishorn hér... svona til að minna ykkur á hver við erum... reyni að ná einhverjum góðum myndum af leiknum, sætin okkar eru hins vegar ekki í neinni blaðamannastúku... en góð samt:) vill benda þeim sem eru með virkilegan aulahúmor á nýtt myndband í safninu ![]() ble ste 20.8.2008Áfram ÍslandBirkir splæsti í mig einu símtali áðan til að láta mig vita að spá mín um uppstyllingu byrjunarliðsins í kvöld væri rétt. Ég veit bara alveg hvernig þessir smiðir hugsa Ég var nokkuð sátt þrátt fyrir eitt spurningamerki. Ég ætla þó ekki að gerast svo kræf að setja opinberlega út á þetta val þjálfarans enda er hann búinn að næla sér í UEFA A. (ekki ég...) Íslenska lansliðið í handbolta komst í undanúrslit á ÓL með sigri á Pólverjum í dag!!! það er alger snilld. En það sem ég elska þegar "strákunum okkar" gengur vel er þegar Óli Stef fer í viðtöl ![]() Við mamma fórum í göngutúr í dag með púkana. Röltum niður að vatni sem heitir Tveitevatnet og gengum í kringum það. Við skröltum með regnhlífar, götukort og AUKA FÖT í bakpoka, bara til öryggis því það hafði gert eina skúr fyrr um daginn Ekki eitt ský sást þó á himni það sem eftir var dags og hitinn hækkaði bara stöðugt Við vorum voðalega miklir túristar.séð yfir vatnið... Hjörtur fór annan daginn sinn í skólann í dag. Hann stendur sig svo ótrúlega vel og eiginlega gengur miklu betur en við þorðum að vona. Guttinn kveður bara þegar hann treður sér í röð með 20 öðrum börnum, hann skilur þau ekki og ekki skilja þau hann. Kennarinn tekur í höndina á þeim þegar þau ganga inn og minn maður bara eltir... skilur ekkert, bara eltir. Hann spilar með þeim fótbolta við hvert tækifæri og er víst afar eftirsóttur á vellinum að sögn kennaranna. Þeir nefndu það einnig við mig í dag að hann stæði sig vel í íþróttunum Hann er byrjaður að læra að telja á norsku OG ensku, já hann er byrjaður í ensku. Fyrsti tíminn var í dag í skólanum. nú er þessi litli íslenski strákur sem er búinn að vera í Noregi í þrjár vikur og í norskum skóla í þrjá daga farinn að læra ensku Á NORSKU!!! hann er samt sami gaurinn utan skóla...En nú bíð ég bara spennt eftir að geta horft á landsleikinn á netinu... Áfram Birkir!! Áfram Ísland!! hafið það gott... SS 18.8.2008ja eða hvað, var maðurinn kona??*Ég er í Noregi brjaaaálus... (sagt með kisuhreim) *Birkir er á Íslandi, elti þangað eitt stykki fótbolta. Allir að mæta á völlinn sem eru ekki grasekkjur í Noregi ![]() *Mamma er í Noregi... sem er gott, því hún bakaði lummur í gær þó svo að ekkert væri hráefnið ![]() *Hjössi rebbi byrjaði í skólanum í dag, það gekk óóótrúlega vel, þessi strákur er meistari!! Þóra harðstjóri fann KJÓLINN!! eigum við e-ð að ræða íslenska knattspyrnu þessa dagana??? ![]() ooooog enn eru nýjar myndir í albúminu. Af íbúðinni og svona;) kv. St. Flettingar í dag: 21 Gestir í dag: 8 Flettingar í gær: 29 Gestir í gær: 7 Samtals flettingar: 95645 Samtals gestir: 36672 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 17:10:50 |