El snillingos

heja Norge!

Vafraðu um


Herra og frú Laugarvatn:)

Nafn:

Birkir og Stebba

MSN netfang:

birkirm@hotmail.com og stebbastelpa@hotmail.com

Afmælisdagur:

11.nóv og 22.des

Staðsetning:

Bergen

Um:

Þú þekkir okkur;)

Tenglar

Blogg

31.7.2008

5 ÁRA!!!

Elsku litla prinsessan okkar er 5 ára í dag.

Þessi litli skemmtikraftur mundi nú ekki einu sinni eftir því í gær að dagurinn væri að renna upp, þar sem við höfum verið á hvolfi við að koma okkur til Noregs. En þangað erum við komin og ætlum að eiga góðan dag með litlu skessunni... þegar búið er að fara í bæjarferð og kaupa þrjú stykki rúm Hún vill að sjálfsögðu köku í tilefni dagsins því Birkir missti af kökuáti heima um daginn af sama tilefni. Hún veit svo sannarlega hvað hún vill og er duglegust allra 5 ára kvenna.
 


Í agnablikinu erum við á hóteli, herbergi sem er hálfgerð íbúð, með eldhúsi og öllu saman. En við ætlum að reyna að koma okkur í íbúðina okkar í dag.
Kærar kveðjur frá fjölskyldunni sem gerir hlutina hratt
...

Skrifað 31.7.2008 kl. 7:30 af

Bein slóð á færslu

14 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.7.2008

heja Norge!


Hann kallar ekki allt ömmu sína hann Ingvi stóri bróðir minn... kíkið á
þetta
Flestir hefðu bara fellt dýrið nær sjálfrennireiðinni svo eftirleikurinn yrði auðveldari... En nei, ekki Ingvi Þór

Ég er á leiðinni með börnin til Bergen á morgun, sem sagt, FLUTT TIL NORGE
set myndir við fyrsta tækifæri,
Stebba.

Skrifað 29.7.2008 kl. 10:57 af

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.7.2008

Bergen

Sæl og blessuð þið tryggu lesendur :)

Atvinnumannslífið er að "tríta" mig mjög vel þó að ekki hafi maður nú mikið fyrir stafni á daginn. En ég kvarta ekki. Þetta hefur jú alltaf verið draumurinn :) En á milli þess sem ég horfi á sjónvarpið, ét og horfi meira á sjónvarpið þá hef ég verið að leita að íbúðum fyrir okkur fjölskylduna. Fyrsta íbúðin sem ég skoðaði leit vel út en vitleysingarnir sem leigja hana út ákváðu að velja okkur ekki sem leigjendur. Óskiljanlegt! En í dag er ég að fara skoða heilar 3 íbúðir og vonandi verður ein af þeim okkar heimili næstu mánuðina. Ég hef haft það fyrir reglu að troða því að að ég sé "en Brann spiller" og vonandi hefur það góð áhrif á leigusalana :) En á meðan ég sit hérna á hótelherbergi og geri nánast ekki neitt þá er Stefán sveitt heima á Íslandi við að pakka allri búslóðinni niður, selja bílinn og eiginlega ganga frá öllu. Það er ekki laust við það að samviskan sé aðeins að naga mann yfir því að hafa skilið hana eftir með nánast allt ófrágengið. En ég redda því með því að finna handa okkur góða íbúð og líklegast mini-van fyrir fjölskylduna og til að ferja alla gestina sem eru búnir að lofa að mæta á svæðið :)

En það styttist í stóra daginn, 2.ágúst, en þá má ég spila minn fyrsta leik fyrir Brann. Ég get ekki beðið. Hægri bakvörðurinn er ekki búinn að eiga góða leiki uppá síðkastið þannig að ég verð að æfa eins og skepna og mæta í byrjunarliðið á heimavelli í fyrsta leik á móti Ham-Kam. Heimavöllur Brann er sóðalegur. Stemningin er svakaleg frá upphafi til enda og 18000 manna völlurinn er alltaf troðfullur. Það verður geðveikt að stíga inn á þennan völl og spila. Ég fæ bara gæsahúð við að hugsa um það. En jæja, þá er þetta orðið gott. Læt nokkrar myndir af stemningunni á Brann stadium fylgja. Salut


http://pub.tv2.no/multimedia/TV2/archive/00555/Brann_Stadion_555940i.jpg
                                                            Brann Stadium



         Image:Brann Stadion.jpg
                                                             Agaleg stemning


http://farm3.static.flickr.com/2377/2505606873_127a5208fc_o.jpg

Skrifað 23.7.2008 kl. 11:57 af

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.7.2008

kjúklingur...

jæja, nú hefur margt breyst hjá okkur Noregsförum...

*Í byrjun sumars biðum við og biðum eftir að fá íbúð í Rvk og ætluðum að keyra á milli á skólann síðasta veturinn því Birkir æfði daglega en skólinn var ekki upp á hvern dag.

*Við fengum íbúð, fluttum upp á 3. hæð... en aðeins 2-3 vikum síðar var Valsari Íslands seldur úr landi og stendur nú til að fjölskyldan flytjist af landi brott áður en langt um líður. 

*Við förum tvö til Noregs í fyrramálið, förum á leik með Brann sem þeir eiga við Lyn í Oslo og förum svo til Bergen annað kvöld. Þar stendur til að reima aðeins á sig takkaskóna og skoða sig um. Miðvikudeginum eyðum við svo einnig í Bergen og skoðum umhverfið, skólana, húsnæðismarkaðinn og þess háttar:)  Við eigum svo kvöldflug á miðvikudaginn heim aftur. 

*Birkir á Þá ekkert eftir á klakanum nema að henda í tösku og kveðja, því hann er svo alfarinn á fös eða lau.  Ég fylgi svo á eftir með börnin Þegar líða fer á mánuðinn og stefni á að vera komin út fyrir 1. ágúst. 

*Birkis plön eru nokkuð ljós næstu misseri en mín eru að verða ljós... ég ætla að fá mér gítar! þarf ég að segja meira

*Þegar ég verð orðin sleip í norskunni og partýhæf á gítarinn þá klára ég þetta litla sem ég á eftir til að verða íþróttafræðingur

*og takk kærlega fyrir allar kveðjurnar fólks!!! voðalega eigum við marga vini

*Bergen! here we come (það var ekki til broskall með regnhlíf...)

Læt eina mynd fylgja af okkur systkinunum með púkana okkar, vænti þess að fá heimsókn frá þeim og fjölskyldum þeirra og ÖLLUM þeim sem hafa sagst ætla að koma í heimsókn!!!


Skrifað 13.7.2008 kl. 18:47 af

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.7.2008

nýtt plan:)

smá breyting frá síðasta bloggi...
Birkir er ekki á leiðinni til Hvíta-Rússlands heldur Noregs
Þeir sem vilja koma í kveðjusleik áður en fjölskyldan heldur utan er bent á að bregðast skjótt við

Eins og ég sagði... AAAAAAAALLT að gerast:)
SS 

Skrifað 3.7.2008 kl. 8:14 af

Bein slóð á færslu

23 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.7.2008

komdu, förum, hvert? bara eitthvað:)

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 47
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 41
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 95593
Samtals gestir: 36656
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 22:46:29